Ég verð nú að seigja hvað ég er rosalega stoltur bróðir í þessa dagana... Freyja systir er að setja upp sína fyrstu tískusýningu og er bara að brillera og allir í alle-familyen eru að leggja sitt af mörkum til þess að gera þetta sem best og flottast, mamma reindar átti víst bara eftir að kveikja í kofanum hjá Gullu frænku við að reina gera marsipan kökur. Vala-mín og Lena systir ætla að vera módel ég ætla að reina taka einhverjar myndir af ærlegheitunum back-stage, og þórgunnur verður kynnir. Agga-Kalda systr pabba gefur ölið og svona má leingi telja... ég tala nú ekki einusinni um alla hina sem eru ekki skyldir... vinir freyju eru margir sem koma til og leggja á vogaskálar T.D er Gísli dúfa buin að vera með henni og taka myndir af fötunum sem sætu vinkonur systu fá heiðurinn að vera í meðan þær eru myndaðar í bak og fyrir hálfar á kafi í vatni eða í -30° undir snjó-framleiðslu vélum í hlíðar fjalli :)
þessi elska hefur lagt svita og tár af líkama og sál og ég er hand viss um að hún muni uppskera einsog hún hefur sáð,,, og þegar freyja litla systir mín sáir þá er það bara gert á einn veg.... af alhúð og kærleika. já maður finnur sko fyrir stoltinu hringla um í hjartanu.....
annars er bara allt fínnt að frétta af hlíðar-familíuni konni að kanna málin með hvað má og má ekki svo ég fari nú ekki meira í það núna en úffff hann er líkur pabba sínum,,
No comments:
Post a Comment