Monday, November 3, 2008

Flutt í glæsilegt húsnæði

Við fjölskyldan notum helgin til að flytja okkur í nýrra STÆRRA og betra húsnæði...
við erum sem-sagt flutt á hlíðarveg 34. 6-herbyggja einbýli með bílskúr og alles hita í gólfum og ég veit ekki hvað.... svo við skötuhjúin erum buin að vera að sveitt frammá morgna síðustu daga (ég veit hvað þið eruð að hugsa :)

Krakkarnir eru líka svona glimrandi hamingjusöm með þetta allt saman.
Konni & Harpa feingu algert víðáttubrjálæði og voru bara með það í tvo daga...

Núna get ég loksinns lagt eitt herbyggi undir þetta ljósmynda-áhugamál, og Vala mín með annað herb undir sín áhugamál listmálun og þannig föndur.... þó má seigja að ég sé nú aðeins dekraðri í þessum efnum, því auðvitað er ekki hægt að gleima bílskúrnum!!! það vita þeir sem mig þekkja :)
kannski ég leyfi mömmu bara að geima DÝRA BÍLINN SINN, hún greyið er orðin mold rugluð og minnir mig á ég veit ekki hvað  hún fékk nefnilega tauga-peninga-bílalána-áfall um daginn...
Já það er algjörlega vangefið og viðbjóðslegt efnahags-ástandið í landinu, ekki það að þið vitið  það ekki nú þegar....

Siggi OUT

1 comment:

  1. Glæsileg mynd hjá þér kæri sonur. Gaman að þú skulir ætla að halda blogginu lifandi. Kem með bílinn í fína bílskúrinn fljótlega múhahaha
    mamma

    ReplyDelete