Við fjölskyldan notum helgin til að flytja okkur í nýrra STÆRRA og betra húsnæði...
við erum sem-sagt flutt á hlíðarveg 34. 6-herbyggja einbýli með bílskúr og alles hita í gólfum og ég veit ekki hvað.... svo við skötuhjúin erum buin að vera að sveitt frammá morgna síðustu daga (ég veit hvað þið eruð að hugsa :)
Krakkarnir eru líka svona glimrandi hamingjusöm með þetta allt saman.
Konni & Harpa feingu algert víðáttubrjálæði og voru bara með það í tvo daga...
Núna get ég loksinns lagt eitt herbyggi undir þetta ljósmynda-áhugamál, og Vala mín með annað herb undir sín áhugamál listmálun og þannig föndur.... þó má seigja að ég sé nú aðeins dekraðri í þessum efnum, því auðvitað er ekki hægt að gleima bílskúrnum!!! það vita þeir sem mig þekkja :)
kannski ég leyfi mömmu bara að geima DÝRA BÍLINN SINN, hún greyið er orðin mold rugluð og minnir mig á ég veit ekki hvað hún fékk nefnilega tauga-peninga-bílalána-áfall um daginn...
Já það er algjörlega vangefið og viðbjóðslegt efnahags-ástandið í landinu, ekki það að þið vitið það ekki nú þegar....
Siggi OUT